Our family
KamblandThe story of our family
Travel
Photographic storys from Iceland and around the world
Yoga
Photographic storys from Iceland and around the world
Tv documentary
Icelandic podcast hosted by Andrea. Discussing all thing related to conception, birth and post birth.
Book
Icelandic podcast hosted by Andrea. Discussing all thing related to conception, birth and post birth.
Podcast
Icelandic podcast hosted by Andrea. Discussing all thing related to conception, birth and post birth.
Design
Design project, spanning selected works from the archive
Moving and still imagery
Photographic storys from Iceland and around the world
Líf dafnar eru sjónvarpsþættir um fyrstu árin í lífi barna og áhrif þess á foreldra þeirra.
Our family
KamblandThe story of our family
Travel
Photographic storys from Iceland and around the world
Yoga
Photographic storys from Iceland and around the world
Tv documentary
Icelandic podcast hosted by Andrea. Discussing all thing related to conception, birth and post birth.
Book
Icelandic podcast hosted by Andrea. Discussing all thing related to conception, birth and post birth.
Podcast
Icelandic podcast hosted by Andrea. Discussing all thing related to conception, birth and post birth.
Design
Design project, spanning selected works from the archive
Moving and still imagery
Photographic storys from Iceland and around the world
Þættir um fyrstu ár barnsins og raunina að verða foreldri sem viðkoma okkur öllum.
Í Líf dafnar þáttunum er rætt við foreldra og heilbrigðisstarfsfólk á einlægan og áhrifaríkan hátt um raunina að verða foreldri og tilfinningarnar sem að því snúa.
Líf dafnar er sjálfstætt framhald af Líf kviknar sem eru þættir byggðir á bókinni Kviknar. Með útgáfu þáttanna varð til heill heimur fyrir foreldra í barneingarferli.
„Ég grenja bara og grenja, svo ótrúlega fallegir þættir en opna líka á allskonar tilfinningar og minningar“
Líf dafnar sýnir hvernig lífið er eftir að við eignumst barn og fleiri börn.
Síðan Andrea fæddi sitt fyrsta barn hefur hún verið hugfangin af líðan foreldra í barneignarferlinu. Hún eignaðist þrjár stúlkur á fimm árum og bætti við tveim litlum drengjum með sambýlismanni sínum. Líf hennar hefur því snúist um eigin barneignir og annarra.
„Þetta snýst allt um að tengja foreldra saman, svo þeim finnist þau ekki vera ein í heiminum með sínar tilfinningar“
Foreldrar þáttanna eru venjulegt fólk sem segir okkur frá rauninni að eignast barn. Sérfræðingar miðla þekkingu sinni og þættirnir sýna fallega íslenska náttúru..
Við fræðumst um mikilvægi tengslamyndunar og skin to skin frá sérfræðingum og ræðum við foreldra um tengsl og tengslarof við börnin sín fyrstu dagana og mánuði. Rætt er um mikilvægi svefns og gráturs og í lokin um áhrif erfiðrar fæðingar á andlega líðan og áhrif þess á frekari barneignir.
Foreldrar segja frá dvöl sinni og barna á spítala og vökudeild. Tölum um áhrif á fjölgun fjölskyldunnar og að lokum valið barnleysi.
Hver eru áhrif kynferðisofbeldis á barneignir? Við fjöllum um líkamsímynd eftir barnsburð, áhrif samfélagsmiðla, mömmuhópa og brjóstagjöf.
Sérfræðingar tala um heilaþroska barna fyrstu árin. Ræðum við foreldra barna með sérþarfir, andlega heilsu, sambandið og kynlíf.
Foreldrar sem ættleiddu barn segja sína sögu, við fjöllum ítarlega um skilnað með lítil börn, samsettar fjölskyldur og frekari barneignir.
Að lokum tölum við um raunina að verða foreldri, uppeldi barna og framtíðina í barneignum.
“Ef við getum sýnt heiminum hvað þessi sería hefur gert fyrir foreldra á Íslandi, erum við skrefi nær að gera veröldina að betri stað”
Mother of three
Series No.1 of 2
Status: Released 2018
Running time: 6x25min
Genre: Docuseries, humaniterian
Hugmynd & þáttastjórnun:
Andrea Eyland
Leikstjórn:
Andrea Eyland
Tökufólk:
Birta Björgvinsdóttir & Þorleifur Kamban
Framleiðsla:
Elísabet Hall
Klipping:
Benedikt Valsson
Framkvæmdastjóri:
Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir
Framleiðandi:
Andri Ómarsson fyrir Glassriver
Handrit:
Andrea Eyland & Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir
Sjónvarpsstöð:
Stöð 2
Tónlist:
Eðvarð Egilssson
Hordur Runarsson
hjá Glassriver
Andrea Eyland
hjá Eyland & Kamban
Ekki hika við að heyra í okkur